Nú styttist óðfluga í það að allir fljótustu vekringar landsins fari að etja kappi hver við annan á Skeiðleikum Baldvins og Þorvaldar á Brávöllum á Selfossi. Leikarnir hafa fest sig í sessi sem einhverjir skemmtilegustu viðburðir keppnistímabilsins í hestaíþróttum.
Skeiðleikarnir verða með hefðbundni sniði og nú hafa mótadagsetningar verið ákveðnar. Stigahæsti knapi tímabilsins fær 100.000 gjafabréf frá Baldvini og Þorvaldi og það er því til mikils að vinna. Skeiðgreinar hafa verið í mikilli uppsveiflu síðustu ár og er engin ástæða til að ætla að það verði breyting á því í ár.
Skeiðfélaginu hlakkar til að taka á móti öllum á Brávöllum á Selfossi í sumar. Skeiðleikarnir verða einnig sýndir í beinni útsendingu á AlendisTV.
Mótadagskrá.
- 26. maí - 1.Skeiðleikar
- 23.júní - 2.Skeiðleikar
- 14.júlí - 3.Skeiðleikar
- 28.júlí - 4.Skeiðleikar
- 18.ágúst - 5.Skeiðleikar