Í framhaldi af samfélagsumræðu og ábyrgð okkar sem bjóðum upp á skipulagt starf fyrir börn á svæðinu vill sveitarfélagið boða til fræðslufundar fyrir þjálfara og leiðbeinendur fimmtudaginn 30. september nk. kl. 20:00 í hátíðarsal Fsu. 

Sveitarfélagið Árborg leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að þjálfarar og leiðbeinendur gefi sér tíma til að mæta þessa kvöldstund og taki þátt í umræðum um þessi málefni. Við berum ótrúlega mikla ábyrgð á börnunum í samfélaginu og oftar en ekki eru orð þjálfarans sterkari en orð foreldra.

Við höfum fengið þrjá góða fyrirlesara til liðs við okkur og vonumst við til að sjá alla þjálfara og þá sem koma að barnastarfi mæta á þennan viðburð.
Það kemur ítarlegri póstur með dagskrá  á næstunni.

 Endilega takið kvöldið frá.

Kær kveðja, 
Díana Gestsdóttir
Lýðheilsufulltrúi

dianag@arborg.is  

Outlook-ddsmzsy5.png