Annað vetrarmót Sleipnis verður haldið á Brávöllum laugardaginn 5 mars kl 13:00
Mótið fer fram með hefðbundnum hætti þar sem riðið er hægt tölt og frjáls ferð á tölti. 
Skráning fer fram á sportfeng og lokað verður fyrir hana kl 23:55 að kvöldi 4.mars.

Það er mjög mikilvægt að kvittun millifærslurnar sé send á vetrarmot@sleipnir.is.
Skráningin er eingöngu gild ef kvittunin er send á netfangið.

Flokkar og skráningargjöld verða með sama sniði og síðustu ár.

  • Pollaflokkur – frítt
  • Barnaflokkur – 1000kr.
  • Unglingaflokkur – 1000kr.
  • Ungmennaflokkur – 1500kr.
  • Heldri menn og konur (55+) – 2500kr.
  • Áhugamannaflokkur 2 (minna vanir ) – 2500kr.
  • Áhugamannaflokkur 1 (meira vanir) – 2500kr.
  • Opinn flokkur – 2500kr.

Ef skráðir eru 9 eða fleiri í tilteknum flokk verða riðlar og velur dómari svo 6 manns til að ríða úrslit. 

Um Sporfeng.

 Tekið er fram að sportfengur bíður ekki alltaf uppá rétta flokka í sínu kerfi og því getur þinn flokkur verið nefndur annað í forritinu heldur enn hann í raun er.

Skráning í pollaflokki fer fram í dómpalli kl 11:30 – 12:00 í mótsdag eða í gegnum netfangið vetrarmot@sleipnir.is

Heiti flokka í sportfeng sem valið er við skráningu .

  • Barnaflokkur – barnaflokkur.
  • Unglingaflokkur-unglingaflokkur.
  • Ungmennaflokkur- ungmennaflokkur.
  • Heldri menn og konur 55+- T7 fullorðinsflokkur 3 flokkur.
  • Áhugamannaflokkur2 – T7 fullorðinsflokkur 2 flokkur.
  • Áhugamannaflokkur1-T7 fullorðinsflokkur 1 flokkur.
  • Opinn flokkur- T7 fullorðinsflokkur meistaraflokkur.

Ef eitthvað liggur fólki á hjarta varðandi skráningu eða mótið í heild sinni er bent á emailið okkar sem tekið er fram ofar í auglýsingunni, einnig er tekið fram að klárað verður að fara yfir póstana fram á laugardagsmorgun þá verður einnig sett í riðla. 

Viljum sjá sem flesta mætta á Brávelli hvort sem er sem keppendur eða áhorfendur, við vonumst eftir góðu verðri og góðri stemningu og ef allt gengur að óskum verður sjoppan að sjálfsögðu opin.

Vetrarmótanefnd Sleipnis 2022