Ferðanefnd Sleipnis er annt um öryggi sinna félagsmanna og hefur boðið brokk.is að halda kynningu á Helite öryggisvestunum, sunnudaginn 22. maí milli klukkan 12-15. Í reiðhöllinni. 
Helite öryggisvestin eru ein besta vörn sem völ er á fyrir hestamenn. Innbyggður loftpúði blæs út ef knapi dettur af baki. Háls og bakmeiðsli eru því miður algeng hjá hestmönnum en þessi viðkvæmi hluti líkamans er vel varinn með hálspúða sem þenst út með vestinu á 0,01 sekúndu. Vestið vegur einungis 600 grömm og hefur engin áhrif á samband knapa og hests. Vestin uppfylla ströngustu öryggiskröfur og eru með CE vottun frá Evrópusambandinu. Kynntu þér málið á https://www.brokk.is/

Ferðanefnd