Hestamannafélagið Sleipnir og Landsbankinn hafa gert með sér
styrktarsamning sem felur í sér stuðning við íþróttastarf félagsins.
Sleipnir heldur úti öflugu æskulýðsstarfi auk þess að bjóða upp á
hestaíþróttir allt árið fyrir börn og unglingasem vilja kynnast
íþróttinni, þar fer fram þjálfun og kennsla á faglegum grunni
þar sem metnaður er lagður í að kenna rétta nálgun og reiðmennsku
frá byrjun. Félagið á þrjá knapa í A-landsliðinu og þrjá knapa
í U21 landsliðinu.
Allt starf félagsins byggir á sjálfboðastarfi og afar mikilvægt að
hafa styrktaraðila eins og Landsbankann.
Á myndinni eru frá vinstri f.h. Sleipnis.
Sólveig Pálmadóttir og Sigríður Magnea Björgvinsdóttir
f.h. Landsbankans, Helga Guðmundsdóttir og Nína G. Pálsdóttir.