Yfir 100 manns mættu á aðventusýnikennslu Gangmyllunnar í Syðri-Gegnishólum í gærkvöldi þar sem við fengum að fylgjast með starfsfólki Gangmyllunnar að störfum við tamningar og þjálfun hrossa á mismunandi stigi. Heitu súkkulaði og kaffi var dælt í mannskapinn til að halda smá hita í hópnum en fólk mætti vel búið og lét ekki kuldann aftra sér frá því að nýta þetta frábæra tækifæri til að fræðast og eiga saman stund í góðum hópi hestamanna. Fræðslunefnd Sleipnis þakkar þeim Olil Amble, Bergi Jónssyni og öðru starfsfólki Gangmyllunar kærlega fyrir þeirra framlag og höfðinglegar móttökur en það er vert að taka það fram að þau gáfu alla vinnu sína sem og aðgang að aðstöðu sinni, svo að aðgangseyrir kvöldsins rann óskiptur til Hestamannafélagsins Sleipnis. Að auki þökkum við Mjólkursamsölunni, Olís og Nettó sem styrktu okkur um veitingar, og Ólafi Inga Ólafssyni sem sá um að flytja fyrir okkur áhorfendastúkurnar sem munaði heilmikið um.
{gallery}Adventusynikennsla_13.12.22{/gallery}