Kæru félagar.
Þá er komið að þriðja og seinasta vetrarmótinu sem haldið verður úti á Brávöllum laugardaginn 25.mars, og biðjum fyrir að veðurguðir verði okkur hliðhollir. Í þetta skipti verður keppt í gæðingatölti, riðið er það sama og venjulega, hægt tölt uppá aðra höndina og frjáls ferð á hina.
Í þetta skipti eru 3 dómarar sem gefa einkunn og 2-3 saman í holli.
Skráning hefst kl 10 mánudaginn 20 mars og opin út miðvikudaginn 22.mars.
Kíkið vel hér að neðan fyrir nöfnum á flokkum eins og þeir eru settir upp á sportfeng svo skráð sé í réttan flokk. EKKI verður tekið við skráningum eftir auglýstan skráningatíma.
Opinn flokkur - Gæðingatölt Fullorðinsflokkur
Áhugamannaflokkur 1 – Gæðingatölt fullorðinsflokkur Gæðingaflokkur 1
Áhugamannaflokkur 2 - Gæðingatölt fullorðinsflokkur Gæðingaflokkur 2
Heldri menn og konur 55 + - Gæðingatölt Ungmenna Gæðingaflokkur 2
Ungmennaflokkur – Gæðingatölt Ungmennaflokkur Gæðingaflokkur 1
Unglingaflokkur – Gæðingatölt Unglingaflokkur
Barnaflokkur – Gæðingatölt Barnaflokkur
Skráning í pollaflokk skal senda póst á vetrarmot@sleipnir.is . Nafn knapa, hest og jafnvel aldur beggja. Vegna notkun reiðhallar verður pollaflokkur úti á velli.
Fyrirspurnir skal einnig bent á að senda á vetrarmot@sleipnir.is
Vetrarmótsnefnd.