Kæru ferðafélagar. Nú er því miður komið að því að við verðum að aflýsa fyrirhugaðri félagsferð daganna 16-20 júní. Reynt verður seinna í sumar að setja saman ,,litla“ ferð um nágrennið og verður það auglýst síðar hér á vefnum. En það fer allt eftir því hvernig þetta bévítans flensustand þróast.
Plan B: okkur langar til að hitta ykkur upp í Úthlíð, laugardaginn 19 júní, þar sem við getum tjaldað eða leigt okkur smáhýsi á mjög sanngjörnu verði. Upplýsingar um smáhýsinn veitir Óli Björns. Sími 8943209 eða á uthlid@uthlid.is Ball verður í réttinni með Geirmundi – svaka fjör í góðum félagsskap, þeir sem hafa hesta við góða heilsu geta tekið þá með – riðið verður að Brúarárskörðum á laugardeginum.Endilega sendið póst á arblik@simnet.is ef þið sjáið ykkur fært um að koma með okkur og látið aðra vita
Með kveðju Ferðanefndin