Fimmtudagur 16. Júní
Lagt af stað frá Hliðskjálf kl 19. Riðið um Ölfus að Hrauni og þaðan niður með ánni í náttstað á Eyrarbakka, þar mun rúta flytja þátttakendur á Selfoss.
Föstudagur 17. Júní
Lagt af stað með rútu frá Hliðskjálf kl 13 að Eyrarbakka og þaðan riðið í Þjórsárver. Þangað verða þátttakendur sóttir og farið verður í Gaulverjabæjarskóla þar sem verður sameiginlegur kvöldverður og gisting.
Laugardagur 18.júní
Lagt verður aðf stað frá Gaulverjabæjarskóla með rútu kl 10 í þjórsárver og þaðan er áætlað að halda af stað kl 11. Riðið verður um Þingdal , Hnaus að flóðgáttinni við Brúnastaði síðan niður með Hvítá að Selfossi.
Þáttökugjald er kr. 9000.- Innifalið matur, gisting í Gaulverjabæjarskóla, rútuferðir og girðingagjöld.
Vinsamlegast greiðið þáttökugjald á reikning nr : 586-14-402120 kt. 251051-4459