Opna WR Íþróttamót Sleipnis verður haldið á Brávöllum dagana 10-13 maí 2012.
Keppt verður í öllum hefðbundnum keppnisgreinum, (sjá hér að neðan). Skeiðkappreiðar verða með rafrænni tímatöku og í anda skeiðleika skeiðfélagsins. Aðstæður á Brávöllum hafa aldrei verið betri og mótssvæðið að festa sig í sessi sem eitt glæsilegasta mótssvæði landsins.

Skráning fer fram mánudaginn 7.maí og þriðjudaginn 8.maí kl. 20-22 í eftirfarandi símanúmerum, 849-4505 og 846-4582.
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram IS númer hests,keppnisgrein og Kt knapa og einnig á hvora hönd skal riðið þar sem það á við.

Keppt verður í eftirfarandi greinum.
Fullorðinsflokkur : T1,T4,V1,F1,PP1, 150,250 og 100m skeið, einnig verður keppt í áhugamannaflokkunum T3 og V3 en þar ríða þrír inná í forkeppni og er stjórnað af þul.

  • Ungmennaflokkur :T3,V3 og F2
  • Unglingaflokkur : T3,V3 og F2
  • Barnaflokkur : T3 og V3
     

Þátttökugjald per grein er:

  • 4000 kr. fyrir utanfélagsmenn
  • 3500 kr. fyrir félagsmenn í Sleipni
  • 2500 kr. fyrir börn og unglinga

Greiðsla miðast við skráningu.
Skráningagjöld skal greiða inná, reikningsnúmer:0152-26-100174, kennitala: 590583-0309.

Með kveðju
Íþróttamótsnefnd Sleipnis