Vegleg verðlaun eru í boði en fyrir fyrsta sæti eru veittir flugmiðar til Evrópu með Iceland Express. Einnig veitir Hestaleigan Laxnes veglega bikara fyrir fyrsta til þriðja sæti.
Þetta verður einstaklingskeppni en ekki liðakeppni og hvetjum við þá sem áhuga hafa á þátttöku að skrá sig á netfangið irmasara@simnet.is. Þar þarf að koma fram nafn á knapa og kennitala, nafn á hesti og IS-númer.
Þátttökugjald er einungis 2000 krónur og skulu lagðar inn á reikning Landsmóts ehf. 515-26-5055, kt. 501100-2690. Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 22. júní.