Hestaíþróttamóti unglingalandsmóts UMFÍ á Brávöllum, félagssvæði Hestamannafélagsins Sleipnis, er lokið.  Við Sleipnisfélagar sem störfuðum að þessu móti sendum öllum þátttakendum, starfsmönnum, gestum og öllum öðrum sem að mótinu hafa komið með einhverjum hætti hjartans þakkir fyrir samstarfið á mótinu.

Mótið fór vel fram í alla staði, sama hvort að það var í keppni eða öðru, og er fyrir það viljum við þakka ykkur öllum.

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin til Brávalla aftur, þökkum ykkur fyrir samveruna, óskum ykkur góðrar heimferðar og heimkomu.