Einkatímar á miðvikudögum í vetur.
Eins og fyrri ár verður boðið uppá reiðkennslu í formi einkatíma á miðvikudagskvöldum í vetur. Kennarar í ár eru Bergur Jónsson og Maiju Varis. Þau kenna annan hvern miðvikudag og verður hver tími 45 mín í senn. Hver og einn stjórnar því hvaða atriði skal vinna í í samráði við kennara.
Skráning fer fram á https://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add og hefst kennsla hjá Bergi 23. janúar og hjá Maiju 30. janúar. Verð er kr. 45.000. Kvittun fyrir greiðslu skal senda á fraedslunefnd2018@gmail.com

Fræðslunefnd