Bestu tímar í skeiðgreinum:
250 m skeið: Sigurteinn Sumarliðason og Krókus frá Dalbæ 21,92 sek á WR móti Sleipnis
150 m skeið: Védís Huld Sigurðardóttir og Saga frá Sumarliðabæ 17,66 sek á WR móti Sleipnis.
100 m skeið: Sigurteinn Sumarliðason og Krókus frá Dalbæ 7,39 sek á HM Sviss.
Ræktunarbikar Sleipnis:
Ræktunarbikar Sleipnis er gefinn hæðst dæmda kynbótahrossinu á árinu sem ræktaður er af Sleipnisfélaga:
Ræktunarbikar Sleipnirs árið 2025 hlaut Daníel Ingi Larssen fyrir Börk frá Kráku. Börkur er undan Viðari frá Skör og Brák frá Baldurshaga. Börkur er 5 vetra og fór í 8,95 fyrir hæfileika á vosýningunni á Rangárbökkum þar sem hann hlaut m.a. sex 9ur. Börkur hlaut 8,54 fyrir sköpulag sem gerði 8,81 í aðaleinkunn.
Daníel Ingi þjálfaði sjálfur hestinn en var sýndur af Viðari Ingólfssyni.
Sérstakar viðurkenningar:
Bergur Jónsson hlaut viðurkenningu fyrir Drang frá Ketilsstöðum sem varð heimsmeistari í flokki 6 vetra stóðhesta. Árangur sem er enn ein rós í hnappagatið fyrir þá stórkostlegu ræktun sem Bergur og Olil hafa byggt upp í gegnum árin. Á dögunum fengu þau einnig viðurkenninguna sem ræktendur ársins á uppskeruhátíð Landssamband hestamanna í sjöunda sinn geri aðrir betur !
Slíkur árangur í ræktun er ekki aðeins persónulegur sigur þeirra heldur með vinnu sinni leggja þau grunn að næstu kynslóðum hesta sem munu halda áfram að gleðja knapa og áhorfendur um allan heim.
Védís Huld hlaut viðurkenningu fyrir einstakt afrek – að verða tvöfaldur heimsmeistari í fjórgangi og tölti ungmenna. Með þessum glæsilega árangri hefur Védís staðfest stöðu sína enn frekar meðal fremstu ungmenna í hestaíþróttum á heimsvísu og orðið öðrum hvatning og innblástur. Við hjá Sleipni erum stolt af því að veita Védísi þessa viðurkenningu og óskum við henni enn og aftur hjartanlega til hamingju með frábæran árangur.
Stjórn hestamannafélagsins Sleipnis heiðraði einn af fremstu afrekshestum sem komið hefur úr ræktun og eigu Sleipnisfélaga – hinn magnaða Krókus frá Dalbæ. Krókus hefur hlotið fleiri viðurkenningar hjá Sleipni en nokkur annar hestur í sögu félagsins. Árið 2014 varð hann hæst dæmdi kynbótahestur úr ræktun Sleipnisfélaga og hlaut Ræktunarbikar Sleipnis með 8,19 fyrir byggingu, 8,90 fyrir hæfileika (þar af 10 fyrir skeið) og í aðaleinkunn 8,60.
Á árunum 2014-2018 vann Krókus fjórum sinnum hinn virta Sleipnisskjöld sem er ein elsta og æðsta viðurkenning félagsins og jafnaði þar með sigurgöngu Þyts frá Kálfhóli.
Árið 2019 var hann aðeins hársbreidd frá sigri og endaði í 2.sæti á þriðja aukastaf.
Krókus keppti tvisvar á Landsmóti hestamanna í A-flokki (2016 og 2018) og komst í A-úrslit í bæði skiptin. Síðustu ár er hann ekki aðeins þekktur sem afburða gæðingur heldur einnig sem einn hraðskreiðasti skeiðhesturinn, auk þess sem hann hefur sannað sig í Slaktaumatölti. Hann sameinar kraft, reisn, rými og fegurð – allt sem við dáum við íslenska hestinn. Frá 2019 til dagsins í dag hefur Krókus verið með bestu tíma hests í eigu Sleipnisfélaga í 100 og 250 m skeiði, annað hvort í báðum greinum eða annarri.
Árið 2024 urðu Sigursteinn og Krókus Íslandsmeistarar í 250 m skeiði og í 2 sæti í 100 m skeiði.
Félagar ársins:
Viðurkenningin Félagi ársins er veitt þeim sem hafa sýnt óeigingjarna þátttöku og verið öðrum hvatning. Sjálfboðaliðar eru hjartað í starfsemi Sleipnis og lykillinn að því að tryggja framtíð félagsins. Með þeirra framlagi byggjum við upp sterkt samfélag sem heldur áfram að vaxa og dafna.
Í ár var okkur sönn ánægja að tilkynna að tveir einstaklingar hlutu titilinn Félagi ársins 2025. Óskað var eftir ábendingum frá félagsmönnum og varð það fljótt ljóst hverja félagar Sleipnis vildu útnefna sem Félagar ársins:
Elísabet Sveinsdóttir
Ástvaldur Draupnisson
Klárhestaskjöldurinn: Ekki veittur í ár þar sem gæðingakeppni féll niður vegna dræmrar þátttöku.
Sleipnisskjöldurinn: Ekki veittur í ár þar sem gæðingakeppni féll niður vegna dræmrar þátttöku.
Knapar ársins.
Íþróttaknapi ársins:
Íþróttaknapi ársins er keppnisreyndur knapi og keppti á öllum sterkustu mótunum í ár með fyrirmyndar árangri. Á Reykjavíkurmeistaramótinu reið hún þrenn A-úrslit í meistaraflokki, á WR íþróttamóti Sleipnis reið hún tvenn A-úrslit og á Íslandsmótinu varð hún í 3.sæti í fimmgangi á Snillingi frá Íbishóli.
Glódís Rún var í landsliðinu sem fór fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótið í Swiss. Þar þreytti hún frumraun sína í fullorðinsflokki en hún var ríkjandi heimsmeistari í fimmgangi ungmenna. Glódís Rún og Snillingur frá Íbishóli náðu í A-úrslit í fimmgangi í feikna sterkri keppni og enduðu þar í 5.sæti.
Gæðingaknapi ársins:
Það fór lítið fyrir gæðingakeppni á árinu sem vill gerast þegar ekki er landsmótsár. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir var valin gæðingaknapi ársins. Guðmunda Ellen keppti á feikna sterku gæðingamóti á Flúðum á hesti sínum Flaumi frá Fákshólum. Þau hlutu 8,70 í aðaleinkunn í forkeppni.
Knapi ársins í ungmennaflokki:
Knapi ársins í flokki ungmenna var valin Védís Huld Sigurðardóttir. Védís átti einstakt ár og sýndi svo sannarlega hvað þrotlaus vinna og eljusemi getur skilað sér. Hún keppti á fjölmörgum mótum með frábærum árangri, en það sem stendur upp úr er að hún varð tvöfaldur Íslandsmeistari í tölti og fjórgangi ungmenna hér á heimavelli og toppaði svo árið með því að tryggja sér tvöfaldan heimsmeistaratitil á Ísaki frá Þjórsárbakka í sömu greinum.
Knapi ársins í flokki áhugamanna:
Knapi ársins í flokki áhugamanna var valin Soffía Sveinsdóttir en hún hlaut viðurkenninguna þriðja árið í röð. Á þeim fjórum stórmótum utanhúss sem hún keppti á reið hún til A úrslita í 1.flokki á þeim öllum og átti hún einnig góðu gengi að fagna í suðurlandsdeildinni en þar sigraði hún slaktaumatölt áhugamanna. Á opna WR íþróttamóti Geysis stóðu hún og Skuggaprins frá Hamri efst eftir forkeppni í T3 með einkunina 6,87 sem jafnframt varð hæðsta einkunn þeirra á árinu í T3 1.flokki.
Knapi ársins hjá Sleipni:
Sigursteinn Sumarliðason hlaut viðurkenninguna Knapi ársins hjá Sleipni annað árið í röð.
Sigursteinn átti gott ár og sýndi mikla færni með þá Krókus frá Dalbæ og Liðsauka frá Áskoti. Segja má að árið hjá Sigursteini hafi einkennst af hraða, þar sem hann keppti að stærstum hluta einungis í skeiðgreinum. Á þeim fjölmörgu mótum sem Sigursteinn keppti á sigraði hann 250 m skeið á WR íþróttamóti Sleipnis á Krókusi frá Dalbæ og með Liðsauka tryggði hann sér 2.sætið í 250 m skeiðí á WR íþróttamóti Geysis. Í ágúst héldu Sigursteinn og Krókus leið sína til Sviss þar sem þeir kepptu fyrir Íslands hönd í 250 og 100 m skeiði. Þar náðu þeir glæsilegum árangri og urðu tvöfaldir silfurhafar í báðum þessum greinum.