Skeiðgreinar
Á hverju ári verðlaunar Sleipnir þá knapa sem náðu bestu tímum í 100, 150 og 250 m skeiði.
Besti tíminn í 100 m skeiði: Sigursteinn Sumarliðason og Liðsauki frá Áskoti á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna - tíminn 7,64 sek.
Besti tíminn 150 m skeiði: Larissa Silja Werner og Hylur frá Kjarri á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna - tíminn 14,93 sek.
Besta tíminn í 250 m skeiði: Páll Bragi Hólmarsson og Snjall frá Austurkoti á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna - tíminn 22,35 sek.
Íþróttaknapi ársins: Glódís Rún Sigurðardóttir
Glódís átti einstaklega gott keppnisár og reið alls ellefu sinnum í A-úrslitum í íþróttakeppni á tímabilinu svo fátt eitt sé nefnt. Hápunktur Glódísar í íþróttakeppninni er án efa eftirminnilegur og sannfærandi sigur í tölti T1 í Meistaradeild Líflands á honum Víkari frá Austurási en þau sigruðu ekki aðeins hjá dómurum heldur unnu einnig hjörtu áhorfenda á pöllunum og heima í stofu. Fagleg og yfirveguð sýning. Glódís sigraði einnig fimmgang F1 á Reykjavíkur meistaramótinu á Ottesen frá Ljósafossi og 100 m skeið á WR íþróttamóti Sleipnis á Herborgu frá Felli.
Gæðingaknapi ársins: Guðmunda Ellen Sigurðardóttir
Guðmunda Ellen átti frábært ár. Hún stóð efst eftir forkeppni í B-flokki gæðinga á úrtöku Sleipnis og náði frábærum árangri á Landsmóti hestamanna. Hún varð í 5.sæti eftir sérstaka forkeppni, 6.sæti eftir milliriðla og reið þ.al. til A-úrslita í feikna sterkum B-flokki og endaði þar í sjöunda sæti. Hún lauk síðan tímabilinu með stæl þegar hún sigraði B-flokk gæðinga á Metamóti Spretts.
Sérstakar viðurkenningar – ræktun
Hugsýn frá Ketilsstöðum úr ræktun þeirra Bergs Jónssonar og Olil Amble. Hugsýn er undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Hugrökk frá Ketilsstöðum. Hugsýn varð á Landsmóti hestamanna hæst dæmda hryssa frá upphafi kynbótadóma en hún hlaut í aðaleinkunn 8,99 með 8,63 fyrir sköpulag og 9,18 fyrir hæfileika. Elín Holst eigandi hryssunnar sýndi hryssuna sjálf.
Safír frá Laugardælum úr ræktun Malin Widarsson. Safír er undan Þránni frá Flagbjarnarholti og Skart frá Laugardælum. Safír hlut á Landsmóti hestamanna 9,13 í aðaleinkunn með 8,83 fyrir sköpulag og 9,28 fyrir hæfileika. Þetta varð hæsti dómur sem íslenskur hestur hefur hlotið frá upphafi dóma. Safír er í dag í eigu Anja Egger og Fákshóla og var sýndur af Jakobi Svavari Sigurðssyni.
Ræktunarbikar Sleipnis 2026: Safír frá Laugardælum - ræktandi Malin Widarsson
Sérstakar viðurkenningar - Íslandsmeistaratitlar
Loftur Breki Hauksson - Íslandsmeistari í T1 unglingaflokki með hryssuna Fylkingu frá Austurási
Páll Bragi Hólmarsson - Íslandsmeistari í 250 m skeiði fullorðinna með Snjall frá Austurkoti.
Félagar ársins hjá Sleipni:
Jón Þór Tómasson
Bryndís Guðmundsdóttir
Knapi ársins í ungmennaflokki: Viktor Óli Helgason
Þetta var fyrsta ár Viktors í ungmennaflokki og stóð hann sig með stakri prýði. Að stíga upp í nýjan flokk getur verið krefjandi, en Viktor náði strax afar góðum árangri og hlítur verðlaunin knapi ársins í ungmennaflokki. Viktor Óli var áberandi á skeiðbrautinni og hlaut m.a. silfur í þeirri grein í Meistaradeild ungmenna á Bríeti frá Austurkoti og hlaut silfur á tveimur skiðmótum á vegum Skeiðfélagsins á Snædísi frá Kolsholti auk þess að vera í úrslitum á gæðingamóti Jökuls og Suðurlandsmóti Geysis.
Knapi ársins í áhugamannaflokki: Þórdís Sigurðardóttir
Þórdís keppti í áhugamannadeildinni í vetur og Suðurlandsdeildinni og bar lið hennar sigur úr bítum í áhugamannadeildinni. Glæsilegur sigur í fjórgangi á Íþróttamóti Sleipnis á Árvakri frá Minni-Borg og 2.sæti í fjórgangi.
Knapi ársins: Loftur Breki Hauksson
Loftur Breki varð Íslandsmeistari í T1 unglingaflokki, sigraði T1 í Meistaradeild Líflands og æskunnar og T1 unglingaflokk á Reykjavíkurmeistaramótinu með Fylkingu frá Austurási. Það er alveg hrein unun að horfa þar á samspil knapa og hests. Loftur Breki fagnaði stórkostlegum árangri á landsmóti hestamanna þar sem hann hlaut silfurverðlaun í feikna sterkum unglingaflokki með Fannar frá Blönduósi. Loftur vann einnig silfur í fimmgangi F2 á Íslandsmeistaramóti barna og unglinga með Mánadís frá Litla-dal og bronsverðlaun í gæðingaskeiði unglinga á sama móti með Sölva frá Stuðlum. Loftur Breki var á dögunum veitt viðurkenning sem stigahæsti knapi Sleipnis í unglingsflokki. Það sem gerir árangurinn enn glæsilegri er að þegar upp er staðið dugði það ekki bara til að vera bestur í sínum aldursflokki heldur þegar stig allra knapa Sleipnis voru tekin saman og árið gert upp stendur Loftur Breki efstur af þeim öllum.
Klárhestaskjöldur Sleipnis
Heiðursverðlaun fyrir efsta hest í B-flokki á gæðingamóti Sleipnis
Þröstur frá Kolsholti 2
Að þessu sinni hlýtur Þröstur frá Kolsholti 2 þennan eftirsótta heiður eftir glæsilegan sigur í B-flokki gæðinga á Gæðingamóti Sleipnis, þar sem hann hlaut einkunnina 8,99. Það var eigandi og ræktandi hans og Sleipnisfélaginn Helgi Þór Guðjónsson, sem reið Þresti til sigurs.Það sem gerir þennan árangur enn merkilegri er að þetta er í þriðja sinn sem Helgi Þór og Þröstur hljóta þessa viðurkenningu – einstakur vitnisburður um hæfileika hestsins og það góða samstarf sem ríkir milli knapa og hests og jafnar þar með met Elinar Holst og Frama frá Ketilsstöðum.
Sleipnisskjöldurinn
Heiðursverðlaun Hestamannafélagsins Sleipnis
Ýr frá Selfossi
Ýr frá Selfossi er ræktuð af Sleipnisfélaganum Atla Fannari Guðjónssyni. Eigendur hennar í dag eru Atli Fannar sjálfur ásamt Elvari Þormarssyni. Ýr frá Selfossi og Elvar Þormarsson sigruðu A-flokk gæðinga á gæðingamóti Sleipnis með einkunina 8,68.