1. grein 
Félagið heitir Hestamannafélagið Sleipnir, og er heimili þess og varnarþing á Selfossi. 
2. grein 
Tilgangur félagsins er iðkun hestaíþrótta, að efla áhuga á hestum og hestaíþróttum og 
jafnframt að gæta hagsmuna félaga sinna á því sviði, og stuðla að réttri og góðri 
meðferð hesta. Þessu markmiði hyggst félagið ná með því, meðal annars: 
- Að eiga og reka góðan sýningar og skeiðvöll, efna þar til hestaíþróttamóta,
 - kappreiða og reiðsýninga í sambandi við þær.
 - Að efna til keppni milli hesta í eigu félagsmanna á hverju ári
 - Að safna og varðveita sannar sagnir um afbragðshesta og afrek þeirra.
 - Að skrásetja sögur um ferðalög félagsmanna á hestum og geyma þær í
 - skjalasafni félagsins.
 - Að tryggja að félagið eigi félagsheimili og aðstöðu til iðkunnar
 - hestaíþróttarinnar innan og utanhúss.
 - Að hafa yfirstjórn með hestaíþróttum innan Árborgar og Flóahrepps.
 - Að stuðla að því að æsku og ungmennastarf verði öflugt.
 - Að vera málsvari félagsmanna innan svæðis og utan.
 - Að vera umsjónaraðili félagssvæðis hestamanna á Brávöllum.
 - Að reiðvegir séu gerðir sem víðast og þannig, að önnur umferð verði til sem
 - minnstrar hindrunar og óþæginda. Reiðvegum þessum sé ávallt haldið vel við.
 - Að vinna að öflugu fræðslustarfi um hestamennsku, hestaíþróttir og önnur
 - málefni á áhugasviði hestamanna. á vegum félagsins, m.a. um uppeldi
 - tamningu, fóðrun, og hirðingu hesta.
 - Að birta árlega skýrslu um helstu störf á vegum félagsins.
 
3. grein 
Félagar geta allir orðið, er áhuga hafa á hestum og hestaíþróttum og eru reiðubúnir til 
þess að hlíta lögum og reglum félagsins. Umsókn skal berast skriflega til stjórnar. 
Nýir félagar öðlast öll félagsréttindi með greiðslu árgjalds. Þeir félagar, er náð hafa 
sjötugsaldri, skulu undanþegnir greiðslu árgjalds, enda hafi þeir verið félagar í a.m.k. 
5 ár. Úrsögn úr félaginu skal einnig vera skrifleg. Félagsmaður sem skuldar árstillag, 
missir félagsréttindi sín. Árstillag skal greiða fyrir 15. apríl ár hvert. 
4. grein 
Aðalfundur ákveður árlegt félagsgjald. Félagsmenn bera enga persónulega ábyrgð á 
skuldbindingum félagsins og ber félagið eitt ábyrgð á skuldbindingum sem stofnað er 
til í nafni þess. Unglingar 18 ára og yngri greiða lægra gjald eftir ákvörðun 
aðalfundar. Félagsgjald skal greiða fyrir 20. febrúar ár hvert. Greiðsluseðla skal senda 
út í janúar ár hvert. Félagar 70 ára og eldri og 12 ára og yngri greiða ekki félagsgjald. 
Félagar, sem skulda árgjald frá fyrra ári, hafa ekki rétt til að taka þátt í keppnum á 
vegum félagsins né réttindi á fundum þess á nýju starfsári, (sem er hið sama og 
reikningsár félagsins) fyrr en þeir hafa greitt skuld sína. Að öðrum kosti falla þeir út 
af félagaskrá. Brjóti félagi alvarlega af sér gegn lögum og reglum félagsins, er stjórn 
þess heimilt að víkja honum úr félaginu. Brottviknum félaga er heimilt að áfrýja máli 
sínu til aðalfundar. 
5. grein 
Stjórn félagsins skipa 5 menn, auk tveggja varamanna. Stjórnin skal kosin á aðalfundi. 
Kosningu skal haga þannig, að formaður sé kosin til tveggja ára í senn. Aðrir í stjórn 
skulu kosnir sameiginlega, til tveggja ára, og skulu þeir úr sínum hópi velja 
varaformann, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda í samráði við formann. Annað árið 
skal kjósa formann og tvo stjórnarmenn, en hitt árið tvo stjórnarmenn. Varastjórn 
skipa tveir menn, sem einnig eru kosnir á aðalfundi, til tveggja ára. Sé varamaður 
kosin í aðalstjórn, skal kjósa mann til að ljúka hans kjörtímabili. Við kosningu 
formanns eru allir stjórnarmenn, ásamt varamönnum hlutgengir, en séu þeir kosnir 
skal kjósa menn til að ljúka þeirra kjörtímabili. Félagsmaður, sem setið hefur í stjórn í 
eitt eða fleiri kjörtímabil getur ef hann óskar eftir því, neitað endurkjöri næsta 
kjörtímabil. Formaður er fulltrúi félagsins út á við og hefur yfirumsjón með starfsemi 
félagsins. Stjórnin boðar félagsfundi og formaður stjórnar þeim, eða skipar 
fundarstjóra. Í fundarboði skal greina fundarefni. Ritari geymir bækur og skjöl 
félagsins og ritar gjörðabók á fundum. Öll önnur skjöl félagsins skulu geymd á 
aðgengilegan hátt á skrifstofu félagsins. Féhirðir hefur fé félagsins á vöxtum og 
annast allar fjárreiður þess. 
Formaður boðar stjórnarfundi eins oft og þurfa þykir og stjórnar þeim. Skylt er honum 
einnig að boða stjórnarfund, ef fjórir stjórnarmenn óska þess. Stjórnarfundir eru 
lögmætir, ef minnst fjórir stjórnarmenn eru mættir á fund. Ritari heldur gerðabók á 
fundum. Gjaldkeri hefur yfirumsjón með fjárreiðum félagsins. Aðalfundur kýs tvo 
bókhaldsfróða menn til þess að endurskoða reikninga félagsins. 
6. grein 
Fundir skulu haldnir svo oft sem þurfa þykir, eða ef 1/10 - einn tíundi hluti- 
félagsmanna óskar þess. Aðalfund skal halda í síðasta lagi 31. Jan ár hvert og skal 
boðað til fundar í almennu héraðsblaði, á heimasíðu félagsins og með tölvupósti til 
félagsmanna, sem sent hafa félaginu tölvupóstfang, með a.m.k. viku fyrirvara. 
Almennan félagsfund eða aðra fundi á vegum félagsins fyrir utan aðalfund má auglýsa 
á annan sannanlegan hátt með nægum fyrirvara og skal tilgreint fundarefni. Fundur er 
lögmætur ef 1/10 -einn tíundi hluti- lögmætra félagsmanna sækir hann. Sé fundur ekki 
lögmætur, má boða til hans á ný á venjulegan hátt, og er hann þá lögmætur án tillits til 
tölu fundarmanna. 
Lögum félagsins verður ekki breytt nema á aðalfundi, þar sem mættir eru minnst 1/10 
-einn tíundi hluti- lögmætra félagsmanna og 2/3 -tveir þriðju hlutar- atkvæða 
samþykkja lagabreytinguna. Tillögur um lagabreytingar skulu kynntar í fundarboði. 
Lagabreytingar, sem félagar kunna að vilja bera fram, skulu berast stjórninni fyrir lok 
desember ár hvert og skulu þær liggja frammi í skrifstofu félagsins og skal geta þeirra 
í fundarboði. 
7. grein 
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Endurskoðaðir reikningar 
félagsins skulu vera aðgengilegir hjá stjórn félagsins, félögum til athugunar, í sjö daga 
fyrir aðalfund. 
Dagskrá aðalfundar er: 
1. Stjórnin leggur fram og kynnir skýrslu um störf félagsins á árinu. 
2. Gjaldkeri skýrir og leggur reikninga félagsins fram til samþykktar. 
3. Kosin stjórn skv. 5.gr. 
4. Kosnir tveir endurskoðendur samkv. 5. gr. 
5. Tilnefning í nefndir 
6. Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár skal jafnframt lögð fram. 
7. Lagabreytingar (ef einhverjar eru) 
8. Önnur mál, sem félagið varðar. 
8. grein 
Reikningsár félagsins er frá 1. janúar til 31. desember. Árgjald félaga skal ákveðið á 
aðalfundi árlega. 
9. grein 
Stjórn félagsins er heimilt að tilnefna nýja heiðursfélaga sem fá viðurkenningu sína 
við hátíðlega athöfn á vegum félagsins, t.d. afmælishátíðum. Heiðursfélagar geta þeir 
einir orðið, sem sýnt hafa frábæran áhuga og dugnað í störfum sínum til eflingar 
félaginu og markmiðum þess. Á lögmætum aðalfundi þarf 2/3 atkvæða til þess, að 
kjör heiðursfélaga sé lögmætt. Merki félagsins á barmmerki skal fylgja útnefningunni 
ásamt árituðu viðurkenningarskjali þar sem getið er um fyrir hvaða þætti helsta verið 
er að heiðra einstaklinginn. 
10. grein 
Reglur um gæðingakeppni, kappreiðar og aðrar hestaíþróttakeppnir skulu vera 
samkvæmt samþykktum Landsambands hestamanna (LH). 
11. grein 
Stjórn félagsins ákveður, hvenær hestamót skulu haldin og skipa starfsmenn eftir því, 
sem lög og reglur L.H. mæla fyrir. 
12. grein 
Heimilt er félaginu að vera aðili að almennum samtökum hestamannafélaga í landinu. 
Félagið er aðili að HSK, Landsambandi hestamannafélaga og Í.S.Í. Formaður 
félagsins er sjálfkjörinn á ársþing á HSK. og L.H. þing. Aðrir fulltrúar félagsins á 
HSK. og L.H. þing skulu tilnefndir af stjórn félagsins. 
13. grein 
Stjórn félagsins er heimilt að stofna deildir innan þess. Deildir innan félagsins eru 
bundnar af lögum þess og skal leitað staðfestingar á deildarstofnun og sérlögum 
deilda á næsta aðalfundi félagsins. 
14. grein 
Stjórn félagsins er óheimilt að selja fasteignir þess, kaupa fasteignir eða hefja 
byggingu þeirra nema að samþykki lögmæts félagsfundar komi til. Ef stjórn hyggst 
leita samþykkis fundar fyrir slíkri ráðstöfun, skal geta þess í fundarboði. Heimildir 
samkvæmt grein þessari skal nota innan tveggja ára frá því þær eru veittar. 
15. grein 
Stjórn félagsins setur reglur um rekstur, félagsheimilis, reiðhallar, og annarra eigna 
félagsins svo og um aðra starfsemi þess jafnóðum og eignir verða til. 
16. grein 
Ef til þess kemur að leysa þarf félagið upp, verður það að gerast á fundi, þar sem 
mættir eru minnst ¾ -þrír fjórðu hlutar- lögmætra félagsmanna, og verður það þá 
aðeins gjört, að 2/3 -tveir þriðju hlutar- fundarmanna greiði því atkvæði. Að öðrum 
kosti verður að kalla saman fund á ný, og verður félagið leyst upp á löglegan hátt, ef 
2/3 -tveir þriðju hlutar- fundarmanna greiða því atkvæði, án tillits til tölu 
fundarmanna. Verði félagið leyst upp, renna allar eigur þess til HSK. 
Samþykkt þannig á aðalfundi félagsins þann 30.janúar 2014, taka þau þegar 
gildi. Eldri lög eru jafnfram brottfallinn frá sama tíma. 
                        
                        
                        
                        
                        
                        
                        
                        
                        