Aðrir skeiðleikar Skeiðfélagsins verða haldnir á Brávöllum 5. júní nk. Skráningu lýkur á miðnætti í dag mánudaginn 3. júní, svo mikilvægt er hafa hraðar hendur við skráningu og láta tækifærið til skeiðreiðar ekki úr greipum ganga.
Allt verður á sínum stað; 250m og 150m skeið, auk 100m flugskeiðs! Lagt verður upp úr því að láta þetta ganga snarpt fyrir sig og gera leikana að notalegri kvöldstund fyrir knapa og áhorfendur.

Skráningargjaldið er krónur 2500.- á hest og skráning fer fram á http://www.skraning.is/vidburdir/skeidleikar-1-2/
Jötunn vélar ehf. styrkir um verðlaunagripi.

Hnakkurinn sem okkar helsti styrktaraðili – Hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur ehf. – mun veita þeim sem fyrstur slær Íslandsmet á skeiðleikum þetta sumarið er ekki genginn út og því er enn tækifæri fyrir knapa til að neyta allra löglegra ráða er þeir telja að komið geti að haldi á komandi leikum – enda mikið í húfi