Nú hefur verið blásið til fjórðu skeiðleika á Brávöllum á Selfossi. Verða Skeiðleikarnir haldnir miðvikudaginn 15. júlí næstkomandi. Ef veður fylgir spám verða góð skilyrði á staðnum.
Skráning er hafin og henni lýkur klukkan 16:00 þriðjudaginn 14. júlí.


Allt verður á sínum stað; 250m og 150m skeið, auk 100m flugskeiðs! Lagt verður upp úr því að láta þetta ganga snarpt fyrir sig eins og venja stendur til. Miðast alli við að knapar og áhorfendur geti átt notalegri kvöldstund.
Styrktaraðili Skeiðleikanna í ár – hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur styrkir um verðlaunagripi sumarsins. Auk þess hefur ræktunarbúið Auðsholtshjáleiga styrkt um svokallaða Ödera sem veittir eru stigahæsta knapa á móti hverju og þeim knapa sem flest stig hlýtur á sumrinu.
Skráningargjaldið er krónur 2500.- á hest og skráning fer fram á þessa leið: Senda póst á skeidfelagid@gmail.com í honum verður að koma fram IS Nr hests, Kennitala knapa og keppnisgrein.
Greiðsla á að berasta á ;
reikningsnúmer : 0586-14-603238
Kennitala: 620606-0140
Staðfesting á greiðslu sendist á skeidfelagid@gmail.com
Skráning og greiðsla verður að berast fyrir 16:00 Þriðjudaginn 14.júlí