Eftir hádegið föstudaginn 5. febrúar verður Halla Eygló Sveinsdóttir starfsmaður Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins í hesthúsahverfinu á Selfossi við DNA-sýnatökur og örmerkingar.
Áhugasamir vinsamlegast setji sig í samband við Höllu í gegnum tölvupóst halla@rml.is eða síma 516-5024 / 863-1803.
Á síðasta ári var sú regla tekin upp að stroksýni verður að vera til úr öllum hryssum og geldingum sem koma til kynbótadóms. Staðfesting um sýnatöku þarf að liggja fyrir í WorldFeng til að hægt sé að skrá hross á kynbótasýningu. Ekki er þó skilyrði að sýni séu fyrirliggjandi úr foreldrum hryssanna/geldinganna, líkt og kveðið er á um fyrir stóðhesta.