Fyrsti fundur Skeiðfélagsins á árinu 2016 var haldinn sunnudaginn 16. Janúar. Þar var árið 2015 gert upp og farið yfir mót og verkefni Skeiðfélagsins. Skeiðfélagið hélt fimm skeiðleika sumarið 2015 sem gengu allir nokkuð vel og voru Skeiðfélagsmenn ánægðir með skráningar og gengi á mótunum.
Hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur styrkti Skeiðfélagið með verðlaunagripum og sú nýbreytni átti sér stað að gefin voru verðlaunin Öderinn fyrir stigahæstu keppendur hvers móts og fyrir stigahæsta keppanda samanlagt yfir sumarið. Gunnar og Kristbjörg hjá Hrossaræktarbúinu í Auðsholtshjáleigu gaf Öderinn.
Stjórn Skeiðfélagsins tók einnig að sér utanumhald og skipulag annara skeiðkappreiða s.s. skeiðkeppni Meistaradeildarinnar í fyrrahaust. Einnig aðstoðaði Skeiðfélagið við skeiðkeppni á Gullmótinu í Sprett. Skeiðfélagið hélt í fyrravetur fyrirlestur með Guðmundi Einarssyni og síðar um vorið var námskeið á vegum Skeiðfélagsins og Sigurbjörns Bárðarsonar.
Á komandi ári verður starfsemi Skeiðfélagsins með svipuðu sniði og undanfarin ár, þ.e. fimm mót verða haldin í sumar, þrjú fyrir LM og tvö eftir. Fyrsta mót er áætlað að verði haldið 18. Maí en það verður auglýst nánar þegar nær dregur.

Dagsetningar verða kunngjörðar fljótlega þegar þær hafa verið staðfestar. Núna í vetur er markmið Skeiðfélagsins að halda fyrirlestur eða fræðsluerindi fyrir skeiðáhugamenn og jafnvel einhverskonar námskeið í vor fyrir áhugasama.
Á fundinum urðu nokkrar mannabreytingar í stjórn og ber helst að nefna að Gísli Guðjónsson sagði af sér sem formaður og tekur Eyvindur Hrannar Gunnarsson við formennsku af honum. Gísli heldur engu að síður áfram í stjórn sem meðstjórnandi. Þorkell Bjarnason sagði lausa stöðu sína sem ritari og stjórnarmeðlimur og tók Stefán Ármann Þórðarson við þeirri stöðu. Þá sagði Árni Freyr Pálsson sig úr stjórn. Þess má einnig geta að Hjörvar Ágústsson var kjörinn nýr í stjórn Skeiðfélagsins. Stjórn Skeiðfélagsins er sem hér segir: Formaður: Eyvindur Hrannar Gunnarsson Gjaldkeri: Daníel Ingi Larsen Ritari: Stefán Ármann Þórðarson Meðstjórnendur: Gísli Guðjónsson, Þórarinn Ragnarsson, Lárus Jóhann Guðmundsson, Hjörvar Ágústsson og Árni Sigfús Birgisson. Stjórn Skeiðfélagsins hlakkar til þess að takast á við komandi verkefni og óskar hestamönnum gleðilegs árs og velgengni á komandi ári.

Skeiðfélagið.