Skráningafrestur á Ískaldar framlengdur til hádegis á morgun, 16.feb.

Spennan magnast fyrir Ísköldum töltdívum um helgina. Keppnin verður haldin í Samskipahöllinni í Spretti næstkomandi laugardag og hefst eftir hádegi (nánari tímasetning þegar skráningu lýkur).
Mótið er haldið til að efla konur til keppni í hestaíþróttum og styrkja um leið landslið Íslands í hestaíþróttum.

Skráning er á sportfeng http://skraning.sportfengur.com/ og lýkur á hádegi á morgun.

Veglegir vinningar verða veittir og því til mikils að vinna!



· Glæsilegasta parið hlýtur Reflect ábreiðu frá Hrímni, gjöf frá Líflandi og iittala vasa frá Ásbirni Ólafssyni.
· Sigurvegari opins flokks hlýtur þátttökurétt á Allra sterkustu 26. mars næstkomandi.
· Veglegir verðlaunagripir og aukavinningar frá Líflandi verða afhentir keppendum í A-úrslitum.
· Landsmót hestamanna gefur 4 vikupassa sem dregnir verða úr hópi þeirra sem keppa í úrslitum.

Við hvetjum allar konur til að skrá sig og taka þátt í þessum frábæra degi með okkur.
Fjórir flokkar verða í boði:

· Opinn flokkur (T1)

· Meira vanar (T3)

· Minna vanar (T7)

· Ungmennaflokkur (T3)

Vonumst til að sjá sem flesta á laugardaginn!


Mynd eftir Jón Björnsson: Kristín Lárusdóttir núverandi heimsmeistari og Þokki frá Efstu-Grund.