Aðrir Furuflísa- vetrarleikar félagsmanna Sleipnis verða laugardaginn næstkomandi 5.mars á Brávöllum Selfossi kl 13. Vonumst til að sjá sem flesta
Keppt verður á hringvelli í Opnum flokki, 55+ Heldri menn og konur Áhugamannaflokki 1, Áhugamannaflokki 2, Ungmennaflokki , Unglingaflokki, Barnaflokki (aldur 10-13) og Pollaflokki (skipt í tvo hópa s.s teymt undir og án teymingar).
Skráninargjöld:
Frítt fyrir börn og polla
1000 kr fyrir unglinga
1500 kr fyrir ungmenni
2000 kr fyrir fullorðna
Skráning fer fram í dómaraskúr við völlinn kl. 11:30 til 12:30. Posi á staðnum.
Nefndin áskilur sér rétt til að færa knapa um flokk miðað við getu