Reiðmaðurinn er nám ætlað fróðleiksfúsum hestamönnum og áhugafólki um reiðmennsku sem vill auka við þekkingu sína og færni í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi. 
Námskeiðið er byggt upp af námi í reiðmennsku og er megináherslan lögð á það en einnig er þetta almennt bóklegt nám um m.a. sögu og þróun hestsins, fóðrun hans, frjósemi og kynbætur. Reiðmaðurinn er tveggja ára nám og er metið til 33 ECVET-eininga á framhaldsskólastigi

Kveðja fræðslunefnd Sleipnis

Reidmadur16