Æskulýðsnefnd er að fara af stað með tvö vornámskeið sem kennd verða nú í maí. Annars vegar er um að ræða Keppnisnámskeið kennt af Arnari Bjarka og svo almenn námskeið fyrir börn og ungmenni, kennari verður Hugrún Jóhannsdóttir.
Skráningar eru með netpósti, sjá nánar hér að neðan:
KEPPNISNÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN OG UNGLINGA
Fyrirhugað er að halda 5 kennslustunda Keppnisnámskeið fyrir börn og unglinga nú í maí. Kennari verður Arnar Bjarki Sigurðarson og mun námskeiðið kosta kr. 15.000,-
Áhugasamir sendi póst á hronnbjarna@hotmail.com fyrir 1. maí nk.
ALMENNT REIÐNÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN/UNGLINGA
Seinni hluti almennra reiðnámskeiða sem búin eru að vera í vetur hefst í byrjun maí. Kennari er Hugrún Jóhannsdóttir og kennt verður vikulega í 4 skipti. Þeir sem skráðu börn sín á 12 tíma námskeið og hafa þegar greitt fyrir það halda sjálfkrafa áfram og fá tölvupóst þar um, aðrir verða að skrá sig í þessa 4 aukatíma fyrir 1. maí með því að senda tölvupóst á hronnbjarna@hotmail.com
Ekki er nauðsynlegt að börnin hafi verið á fyrri hluta námskeiðanna til að geta skráð sig í þessa 4 síðustu tíma.
Verð fyrir 4 skipti á almennu reiðnámskeiði er: kr. 5.000,-.
Kveðja, Æskulýðsnefnd.