Opið gæðingamót og úrtaka Sleipnis,Ljúfs og Háfeta Gæðingakeppni verður á Brávöllum á Selfossi 3.-4. júní næstkomandi. Gæðingakeppnin verður einnig úrtaka fyrir Sleipni, Ljúf og Háfeta og verður keppt í A flokki, B flokki,C-flokki ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki. Einn keppandi verður inná velli í einu.
Í úrtökunni verða farnar tvær umferðir og eiga keppendur þess kost að skrá sig í seinni umferð klukkutíma eftir að fyrri umferð líkur. Skráning er hafin á http://skraning.sportfengur.com/ og lokar þriðjudaginn 31. maí á miðnætti.
Til að skrá sig í C-flokk þarf að velja keppnisgrein sem heitir annað. Ef um millifærslur á greiðslu er að ræða þarf að senda staðfestingu á gjaldkeri@sleipnir.is

Drög að dagskrá:
Föstudagur 3. júní: Fyrri umferð í A-flokk
Laugardagur 4. júní: Fyrri umferð í B-flokku,Ungmenna-,unglinga og barnaflokk auk forkeppni í C-flokk. Einnig seinni umferð í A-flokk Sunn 5. Júní: Seinni umferð í B-flokk,Ungmenna-,unglinga og barnaflokk. Úrslit í öllum greinum
Mótanefnd Sleipnis