Ferðanefndin boðar til þorrareiðar og -blóts laugardaginn 18 febrúar. Riðið verður frá reiðhöllinni á Selfossi um klukkan 14:00 og farið að Þorleifskoti þar sem boðið verður upp á léttar veitingar á sannsgjörnu verði.
Um og upp úr klukkan 17:00 verður síðan þorra blótað í félagsheimilinu Hliðskjálf.
Miðasala í matinn verður í forsölu hjá Baldvin og Þorvaldi til og með 13. febrúar. Verði er stillt í hóf að venju og ekki verður selt í matinn á staðnum.
Ferðanefndin