Reiðnámskeið með Rósu Birnu. 21.-23. arpíl n.k. Vegna mikillar ánægju með síðastu námskeið hjá Rósu Birnu – þor og styrkur - hefur verið ákveðið að halda eitt enn námskeið fyrir alla sem vilja auka styrk sinn og færni í samskiptum við hestinn og framhald fyrir þá sem voru á fyrri námskeiðum. Markmið námskeiðsins er að auka færni og öryggi knapanna í samskiptum sínum við hestana. Kennslan verður miðuð út frá forsendum og óskum hvers og eins. Í tímunum verða 2 – 3 saman í hóp, allt eftir þátttöku og óskum hver og eins. Hver og einn fær 5 tíma. Hámarks fjöldi á námskeiðið er 9 manns og kostar kr. 23.000.- Skráning á - http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add (ath skrá þarf félagsmann sem þátttakanda) Skráningu lýkur miðvikudaginn 19. apríl Frekari upplýsingar veitir Hrund s 861-6609