Árshátíð Sleipnis var haldin þann 14. október í Hvíta Húsinu á Selfossi sem var einnig uppskeruhátíð fyrir starfsárið 2017. Farið var yfir helstu viðburði ársins sem hefur verið bæði annasamt og skemmtilegt með mótahaldi og fjölmennum félags reiðtúrum bæði um Flóann og Borgarfjörðinn. Þökkum við aðalstyrktaraðilum Sleipnis sem eru Landsbankinn og Jötunn Vélar á Selfossi fyrir veitta velvild og stuðning við æskulýðsstarf félagsins.

Hestamannafélagið Sleipnir er svo gæfusamt að margir eru tilbúnir að rétta fram vinnuframlag og þá er gaman að sjá hlutina ganga upp og viðburðir eru vel skipulagðir og sjálfbærir gagnvart félaginu.

Enn er aukið við uppbygginguna á svæðinu með uppsetningu á lýsingu á Brávallarsvæðinu sem eykur öryggi á svæðinu í skammdeginu og er Sveitarfélaginu Árborg þökkuð veitt velvild til félagsstarfsins.

Félagi ársins er Einar Hermundsson fyrir frábært og virkt félagsstarf á árinu sem og á liðnum árum. Sér í lagi þó fyrir mikið starf að reiðvegamálum og vígslu nýrra reiðleiða og svo mætti áfram telja.

sl2017

 

 

 

 

 

 


Bikarhafar ársins eru eftirtaldir:

  • Knapi ársins; Bergur Jónsson átti frábært keppnisár á hrossum úr eigin ræktun en þó aðallega á Kötlu frá Ketilsstöðum.
  • Íþróttaknapi Sleipnis; Elín Holst fyrir frábæran árangur sinn með Frama frá Ketilsstöðum.
  • Efsti hestur A-flokks og skjaldarhafi er Draupnir frá Stuðlum eigandi Palli og Edda og Austurás hestar eigandi Palli og Edda og Austurás hestar
  • Efsti hestur B-flokks og skjaldarhafi er Frami frá Ketilstöðum eigandi Elin Holst.
  • Ræktunarbikar Sleipnis fær Einar Hermundsson fyrir Álfrúnu frá Egilsstaðakoti. Álfrún hlaut fyrir byggingu 8.39 og hæfileika 8.99 Aðaleinkunn Álfrúnar er því 8.75
  • Æskulýðsbikar Sleipni hlaut; Glódís Rún Sigurðardóttir fyrir árangur sinn með Blikku og annan góðan árangur á árinu.
  • Skeið 250 m Ásgeir Símonarson á Bínu frá Vatnsholti með tímann 24.02 sek
  • Skeið 150 m Glódís Rún Sigurðardóttir á Blikku frá Þóroddsstöðum með tímann 14.57 sek.
  • Skeið 100 m Glódís Rún Sigurðardóttir á Blikku frá Þóroddsstöðum með tímann 7.68 sek.

Kveðja Stjórn Sleipnis

{gallery}Uppskeruhatid Sleipnis 2017{/gallery}