Félagsmenn í Hagsmunafélagi hesteiganda á Selfossi 

Vakin er athygli á því að heimilt er að sleppa reiðhrossum á almenninginn sem er á vegum Hagsmunafélags hesteiganda á Selfossi í Bjarkarstykkinu.  Senda verður tölvupóst á disaov@gmail.com með upplýsingum um fjölda hrossa, IS númeri þeirra ásamt símanúmeri eigenda eða tengiliðs. 

 

Greiða skal 5.000 krónur fyrir tímabilið á hvern hest samhliða skráningu. Gjaldið skal leggja inn á reikning 0152-15-381968 kt. 221258-2079 og senda kvittun á disaov@gmail.com. Verði hestur skannaður sem ekki hefur verið skráður áskilur félagið sér að senda reikning á eiganda fyrir tvöföldu gjaldi þ.e. 10.000 krónur á hest. 

Hestarnir eru ávallt á ábyrgð eigenda á stykkinu og ber eigendum að hafa almennt eftirlit með sínum hrossum. 

Jafnfram skuli þeir sem eru með sér hólf á vegum félagsins greiða afnotagjald 2018 inn á sama reikning. Eldri ógreidd afnotagjöld skal einnig gera upp inn á sama reikning. Senda skal póst á disaov@gmail.com þar sem fram kemur hver sé umráðamaður stykkisins, staðsetningu, áætlaða stærð og fjölda hrossa sem og greiðanda. 

Með kveðju, Stjórn Hagsmunafélags hesteigenda á Selfossi