Eftirfarandi reiðnámskeið verða í boði fyrir börn og unglinga veturinn 2019 :

A. Almennt reiðnámskeið, 8 skipti: Létt fræðsla í bland við leiki og fjör fyrir hressa krakka. Kennari: Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir. Þessir tímar verða í Reiðhöllinni á þriðjudögum. Kennt verður í 6-8 manna hópum. Fyrsti tíminn verður 29. janúar. Verð kr. 12.000,-

B. Keppnisnámskeið, 7 skipti. Áhersla á að leiðbeina þátttakendum sem langar að keppa á mótum í vetur. Kennari: Ragnhildur Haraldsdóttir. Þessir tímar verða ýmist á þriðjudögum (inni í Reiðhöll) eða úti á velli (laugard./sunnud). Kennt verður í Reiðhöllinni og úti á hringvelli, 2-3 saman í hóp. Verð kr. 21.000,-

 

Tekið á móti skráningum í netfanginu: hronnbjarna@hotmail.com

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram við skráningu:
• námskeið sem valið er
• nafn og kennitala þátttakanda
• nafn forráðamanns
• gsm nr. forráðamanns
• netfang forráðamanns

Æskulýðsnefnd Sleipnis