Fimmtudaginn 10. janúar kl. 19 verður kynning á reiðnámskeiðum fyrir börn/unglinga í hestamannafélaginu Sleipni veturinn 2019. Fundurinn verður haldinn í félagsheimili hestamanna, Hliðskjálf. Áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér þau námskeið sem í boði verða og ganga frá skráningum. Ath. að námskeið þessi krefjast þess að þátttakendur komi með eigin hest.

Námskeiðin hefjast 29. janúar.

Æskulýðsnefnd Sleipnis