Síðustu skeiðleikar ársins fara fram samhliða Meistaramóti Íslands á Gaddstaðaflötum

Fimmtu og síðustu skeiðleikar ársins fara fram laugardaginn 31.ágúst á Gaddstaðaflötum við Hellu. Leikarnir eru haldnir samhliða Meistaramóti Íslands í gæðingakeppni sem fer fram þessa helgi.

Skráning er í gegnum Sportfeng þar sem velja þarf Skeiðfélagið sem aðildarfélag Skráningarfrestur er frá og með kvöldinu í kvöld fram á fimmtudagskvöldið 29 ágúst. Nú eins og undanfarinn ár er keppt í stigakeppni sem nær yfir allt keppnistímabilið.

 

Til mikils er að vinna í heildarstigakeppninni þar sem hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur gefur stigahæsta knapa ársins 100.000 kr gjafabréf í verslun sína. Heildarsigurvegari skeiðleika vinnur einnig farandbikar sem gefinn er af Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur til minningar um Einar Öder Magnússon

Staðan í heildarstigakeppninni verður kunngjörð þegar nær dregur leiknunum


Keppandi                                Heildarstig

Konráð Valur Sveinsson    80

Elvar Þormarsson                45

Hermann Árnason              41

Gústaf Ásgeir Hinriksson  37

Davíð Jónsson                       31

Ásmundur Ernir Snorrason        29

Bjarni Bjarnason                  29

Glódís Rún Sigurðardóttir 23

Þórarinn Eymundsson       22

Sigursteinn Sumarliðason 22

Sigurbjörn Bárðarson         21