Jötunn Vélar í samvinnu við fjölskyldu Haraldar Páls Bjarkasonar og hestamannafélagið Sleipnir hafa tekið höndum saman um að heiðra minningu Haraldar, eða Halla eins og hann var alltaf kallaður, en hann var bráðkvaddur á heimili sínu langt fyrir aldur fram.
Eins og Sleipnisfélögum er vel kunnugt þá var Halla mjög annt um æskulýðsstarf, snyrtilega og fagmannlega reiðmennsku og það gladdi hann mjög að sjá efnilega og duglega krakka á útreiðum og í keppni.
Verkefnið gengur út á að styrkja einn af yngri félagsmönnum Sleipnis til þess að eflast og þróast sem hestamaður. Leitað er eftir þeim aðila sem sýnir mikinn dugnað, eljusemi, framfarir og metnað til þess að verða góður hestamaður.
Fyrri vinningshafar eru Unnur Lilja Gísladóttir2017 og Stefanía Stefánsdóttir 2018.
Forsendur valsins voru þeir þættir sem Haraldi þóttu mikilvægir í hestamennskunni en þeir eru: Ástundun, framkoma, árangur og þátttaka í starfi félagsins ásamt framförum í reiðmennsku. Allir þessir þættir voru hafðir til hliðsjónar við val á þeim sem hlutu styrkinn.
Valnefndina skipuðu: Fjölskyldumeðlimur Haraldar, einn frá Jötun vélum, einn frá Sleipni og einn úr æskulýðsnefnd Sleipnis.
Í ár hlaut styrkinn Dagbjört Skúladóttir en hún flutti austur á Stokkseyri 4 ára gömul, gerðist fljótlega Sleipnisfélagi. Það sumar fékk hún undanþágu, sökum aldurs, þá 4 ára á reiðnámskeið hjá Háfeta í Þorlákshöfn og má segja að hún hafi verið í hnakknum síðan. Dagbjört hefur með mikilli elju, ástundun og dugnaði náð langt sem hestamaður og hefur stundað hestamennsku af miklum móð. Dagbjört hefur verið virk í félagsstarfi Sleipnis og var nú í vor að ljúka hestabrautinni í FSu og stefnir á næsta ári að fara á Hólum með hestamennsku sem aðalfag.
Dagbjört Skúladóttir fékk afhentan farandbikar og skjöld til eignar ásamt styrk upp á 250 þúsund krónur frá Jötunn Vélum. En styrkinn skal nota til þess að afla sér kennslu, þjálfunar og reynslu til þessa að verðar betri hestamaður.
Hér má sjá Dagbjörtu Skúladóttir ásamt Guðmundi Þór fjármálastjóra Jötunn Véla, Huldu Haraldsdóttur dóttur Haraldar og Magnús Ólason formann Sleipnis við hátíðlega afhendingu styrksins.