Í vetur verður boðið uppá einkatíma á miðvikudögum. Tveir kennarar, Jóhann Kristinn Ragnarsson og Rósa Birna Þorvaldsdóttir reiðkennarar, skipta með sér dögunum og kenna annan hvern miðvikudag.
Rósa Birna hefur kennslu 29. janúar og síðasti tíminn hjá henni er 25. mars.
Jóhann Kristinn hefur kennslu 5. febrúar og síðasti tíminn hjá honum er 1. apríl.
Þau eru bæði menntaðir reiðkennarar frá Hólum og hafa mikla reynslu í kennslu. Tilvalið fyrir Sleipnisfélaga að nýta sér þetta tækifæri og fara á námskeið og bæta sig sem knapa og hestinn sinn um leið.
Hver tími er 45 mín í senn og eru 5 tímar á hvoru tímabili fyrir sig. Námskeiðið kostar kr. 35.000 og er hægt að fá kvittun fyrir stéttarfélag vegna endurgreiðslu sé þess óskað.
Skráning fer fram á:
https://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add
Fræðslunefnd