Nú fer skráningarfresturinn fyrir námskeið með Þórdísi Erlu að renna út. Hvetjum félagsmenn að nýta þetta tækifæri og skella sér á námskeið hjá þessum frábæra og reynslumikla reiðkennara.
Þórdís Erla verður með helgarnámskeið í reiðhöll Sleipnis helgarnar 1. - 2. og 15. - 16. febrúar 2020. Boðið verður uppá einkatíma og ákveður hver og einn í samráði við hana hvað verður farið í. Boðið er uppá tveggja helga námskeið sem inniheldur 4 einkatímar. Hver tími er 45 mín og kostar námskeiðið kr. 30000.
Skráning fer fram á skraning.sportfengur.com
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á fraedslunefnd2018@gmail.com
Fræðslunefnd