Kæru Sleipnisfélagar. Við í Vetrarmótanefnd í samráði við dómara og stjórn Sleipnis höfum ákveðið að aflýsa Gæðingaleikum GDLH og Sleipnis sem halda átti 21. mars næstkomandi.
Þegar ákvörðun var tekinn um að halda mótið þrátt fyrir COVID-19 vonuðumst við að hápunkti væri náð en svo var ekki.
Smitum á Íslandi fjölgar með hverjum deginum og ekki viljum við vera fjölga þeim með Gæðingaleikunum.Vonandi hafa allir skilning fyrir þessu öllu saman og biðjumst við afsökunar á öllum þessum rugling seinustu daga varðandi Gæðingaleika GDLH og Sleipnis.
Við komum að sjálfsögðu til með að endurgreiða þeim sem hafa skráð og borgað á næstu dögum. Endilega sendið skráninganúmer ykkar til okkar á vetrarmotsnefnd@sleipnir.is og gott væri ef nafn á knapa og hesti fylgdi.
Með þessari aflýsingu komum við einmig til með að aflýsa 3. vetrarmóti Sleipnis þann 4. apríl og Páskatölti þann 8. apríl. Sjáumst hress og kát með hækkandi sól á viðburðum og skemmtunum félagsins í vor
Kveðja
Vetrarmótanefnd Sleipnis