Fyrsta vetrarmót Sleipnis verður haldið  laugardaginn 6 febrúar næstkomandi á Brávöllum. 

Hefst það stundvíslega kl 13:00 

Dagskrá og flokkar. 

  • Pollaflokkur
  • Barnaflokkur 
  • Unglingaflokkur 
  • Ungmennaflokkur 
  • Heldri menn og konur 55+ 
  • Áhugamenn & konur 2
  • Áhugamenn og konur 1 
  • Opinn flokkur. 

Sú breyting hefur orðið að nú fer skráning í gengum skráningakerfið Sportfeng. Kynnið ykkur vel þá flokka sem þið keppið í heiti þeirra  í skráningarkerfinu. 

 

Velja þarf Sleipni sem mótshaldara. 

https://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add

Frítt er fyrir pollaflokk. 

Barnaflokkur 1000 kr

Unglingaflokkur  / ungmennaflokkur 1500 kr

55+ flokkur / Áhugaflokkar 1 & 2 & opinn flokkur 2500 kr 

Barnaflokkur  - Tölt T7 Barnaflokkur 

Unglingaflokkur – Tölt T7 Unglingaflokkur 

Ungmennaflokkur – Tölt T7 Ungmennaflokkur 

Heldri menn & konur  - Tölt  T7 Opinn Flokkur 3.flokkur

Áhugamenn 2 -  Tölt T7 Opinn flokkur 2.flokkur  

Áhugamen  1  - Tölt T7 Opinn flokkur 1. Flokkur 

Opinn flokkur -  Tölt T7 Opinn flokkur – Meistaraflokkur 

Þeir sem hyggjast skrá pollana sína skulu senda nafn knapa, nafn hests og lit hests á vetrarmot@sleipnir.is

Opnað verður fyrir skráningu 31. janúar næstkomandi og stendur hún til 5.febrúar kl. 20:00. MIKILVÆGT er að þeir sem kjósa að greiða með millifærslu skulu senda kvittun fyrir greiðslunni á netfangið vetrarmot@sleipnir.is til að skráning verði gild.  Reikningsnúmer til að leggja inn ár er: 0152-26-100774 kt. 590583-0309. 

Komi upp spurningar er hægt að senda á mótanefnd á vetrarmot@sleipnir.is

Vetrarmótanefnd Sleipnis 2021.