Opið gæðingamót Sleipnis fer fram á Brávöllum á Selfossi helgina 7.-9. Júní. Keppt er í öllum hefðbundnum flokkum gæðingakeppninnar og auk þess C1-flokki sem er hugsaður fyrir minna vana knapa.

Skráning er opin og er hún fram í gegnum Sportfeng þar sem velja þarf Sleipni sem mótshaldara.

Á gæðingamóti Sleipnis er keppt um tvo af merkilegustu gripum félagsins, Sleipnisskjöldinn og Klárhestaskjöldinn.

Efsti A-flokks gæðingur í eigu félagsmanns hlýtur Sleipnisskjöldinn sem fyrst var veittur árið 1950 og margir nafntogaðir gæðinga hafa hlotið. Ríkharður Jónsson myndhöggvari skar skjöldinn út í tré.

Í B-flokki er Klárhestaskjöldurinn veittur efsta gæðing í eigu félagsmanns en það var Sigga á Grund listatmaður, útskurðarmeistari og Sleipnisfélagi sem skar skjöldinn í tré.

Gæðingamótsnefnd