Jóhann Kristinn Ragnarsson verður með einka /paratíma í reiðhöllinni frá 3. febrúar. Hann kennir annan hvern miðvikudag og er síðasti tíminn 7. apríl.

Jóhann er menntaður reiðkennari frá Hólum og var hjá okkur í fyrra við góðan orðstír. Ef óskað er eftir paratíma þá skal hafa samband í síma 898-4979 Beta.

Verðið er kr. 58.000 fyrir einkatíma og kr. 29.000 fyrir paratíma og skráning er hér https://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

Fyrirvari er gerður er varðar stöðu á sóttvarnarreglum eða breytingum á þeim .

Hvetjum félagsmenn að nýta sér þetta tækifæri og fara á námskeið og læra nýja hluti.

Bestu kveðjur,

Fræðslunefnd