Kæru félagar í Sleipni.
Heilbrigðisráðherra hefur gefið út nýja reglugerð sem gildir frá og með 25. maí til og með 16. júní. Með henni eru gerðar verulegar tilslakanir á íþróttastarfi.
Sleipnisfélagar, mótshaldarar og skipuleggjendur viðburða eru hvattir til að kynna sér vandlega gildandi reglugerðir hverju sinni og fylgja þeim í hvívetna.
Helstu breytingar í reglugerð heilbrigðisráðherra sem snerta íþróttastarfið eru eftirfarandi:
- Heimilt er að hafa að hámarki 150 þátttakendur í hverju rými á æfingum og í keppni.
- Heimilt er að hafa að hámarki 300 manns í hverju rými á áhorfendasvæðum að uppfylltum skilyrðum skv. 3. grein reglugerðar heilbrigðisráðherra og að hámarki þrjú rými fyrir áhorfendur í hverri byggingu. Skilyrðin eru eftirfarandi:
o Tryggt sé að fjarlægð milli ótengdra gesta sé a.m.k. 1 metri.
o Allir gestir séu sitjandi og ekki andspænis hver öðrum.
o Allir gestir séu skráðir í númeruð sæti, a.m.k. nafn, kennitala og símanúmer. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum.
o Allir gestir noti andlitsgrímu nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru.
o Komið verði eins og kostur er í veg fyrir frekari hópamyndun fyrir viðburð, í hléi og eftir viðburð.
o Skipuleggjendum viðburða er skylt að tryggja þegar gestir eru ekki í sætum, svo sem fyrir og eftir viðburð og í hléi, að ekki komi fleiri saman en 150 manns og að virt sé 2 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra aðila.
o Umgengni í hverju hólfi skal vera í samræmi við leiðbeiningar sóttvarnalæknis þar að lútandi svo koma megi í veg fyrir blöndun hólfa.
Sé eitthvert ofangreindra skilyrða ekki uppfyllt er hámarksfjöldi á viðburði 150 manns í hverju rými. Gæta þarf að tveggja metra lágmarksfjarlægð og nota grímur sé ekki hægt að tryggja hana.
Sóttvarnarfulltrúi Sleipnis
Sjá frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins.
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra, sem gildir til 16. júní, 2021.