Sigvaldi Lárus Guðmundsson, hestamaður og reiðkennari ætlar að vera með sýnikennslu í Reiðhöllinni í Sleipni. Sigvaldi ætlar að fjalla um sýnar hugmyndir sem snúa að hestamennskunni, tamningu, þjálfun og reiðmennsku. Við fáum að kynnast hans nálgun við tamningu og þjálfun ungra hesta og ekki síður knapa með virðingu og traust að leiðarljósi.

Sigvaldi er útskrifaður Reiðkennari frá Háskólanum á Hólum, starfaði sem reiðkennari á Hólum og við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, kenndi Reiðmanninn og er nú yfirreiðkennari Hæfileikamótunar LH fyrir krakka á aldrinum 14-17 ára ásamt því að hafa tamið og þjálfað víða til margra ára.

Léttleiki, virðing og traust.

Sýnikennsla hefst klukkan 19:30, aðgangseyri eru litlar 1500.kr
Frítt fyrir börn 12 ára og yngri.

Hlökkum til að sjá sem flesta!

- Fræðslunefnd Sleipnis-