Miðvikudaginn 30. nóvember kl 20.00 mun Elín Huld Kjartansdóttir halda fyrirlestur um sjúkraþjálfun hrossa og grunn í líffræði. Fyrirlesturinn mun fara fram í Hlíðskjálfi, félagsheimili Sleipnis á Selfossi. Í fyrirlestrinum verður m.a. farið yfir fyrirbyggjandi meðferðir og hvað eigandi getur gert til að flýta fyrir bata. Elín Huld útskrifaðist árið 2017 frá Center for Dyreterapi í sjúkraþjálfun og endurhæfingu fyrir hross. Áætlaður tími fyrirlesturins er um 1 klst. og aðgangur er ókeypis. Stefnt er á að halda námskeið tengt efninu síðar í vetur ef áhugi er til staðar.
Að loknum fyrirlestri Elínar Huldar mun fræðslunefndin kynna drög að dagskrá vetrarins sem er óðum að taka á sig mynd!