Firmakeppni Sleipnis sem frestað var um síðustu helgi fer nú fram nk. laugardag 6. maí og hefst kl. 13. Skráning lokar nú föstudaginn 5.maí um miðnætti.
Tekið verður á móti skráningum á mótsdegi milli 11.30-12.30 í dómpalli.
Ath ef vandamál eru með Sportfeng eða villumelding kemur upp við skráningu:
Það þarf ekki að setja inn kortaupplýsingar þar sem ekkert skráningagjald er. Þið ljúkið bara skráningu án upplýsinga um greiðslukort en fáið þá villumeldingu frá kerfinu / Rapyd Europe . Skráning hefur þó farið í gegn sem ógreidd / ógild en mótshaldarar fara yfir og merkja skráningar sem gildar. Lokað verður fyrir skráningar á miðnætti 28.apríl.nk.
Firmakeppnisnefnd