Um helgina ætlum við að hreinsa til á hesthúsasvæðinu og getur hver og einn notað þann tíma sem hentar til þess.

Við reiðhöllina verða 12 stk af 240 lítra tunnum sem verða merktar eins og við erum að flokka sorp í Árborg í dag:

4 tunnur almennt sorp

4 tunnur plast

4 tunnur pappír/fernur

Ef einhverjar spýtur eru eða járn þá má setja það í heysin sem eru á lausu.

Við látum ykkur hafa bláa poka til að safna úrgangi í.

Upplýsingar um flokkunarreglur má nálgast hér: https://www.arborg.is/media/thjonusta/Baeklingur-fyrir-fyrirtaeki.pdf

Á sunnudaginn verður grillað í lok dags við félagsheimilið fyrir þá sem tóku til hendi. 

 

Tökum höndum saman og gerum svæðið okkar fínt fyrir sumarið!