Hið margrómaða  „ KARLAKVÖLD “ Sleipnis verður haldið í Þingborg, föstudaginn 6. maí nk. kl. 20.00, húsið opnar kl. 19.00.
Það er skemmtilegt kvöld í vændum, veislustjórinn kemur frá öðru héraði að öllum líkindum og verður ekki af verri endanum.

Frábær humarsúpa í forrétt, lambalæri með tilheyrandi meðlæti í aðalrétt, kaffi og það sem ekki má nefna í eftirrétt, allt galdrað fram af snilldarkokknum  Eiríki Þór Eiríkssyni sem er sérfræðingur í sunnlensku úrvalshráefni.

Happadrætti þar sem fjöldi  ótrúlega veglegra vinninga verður í boði.
Ræðumaður kvöldsins kemur vestan úr Borgarfirði, Gísli Einarsson hinn þjóðkunni sjónvarpsmaður og væntanlega mun hann bregða sér í líki landans.

Hápunktur kvöldsins verður uppboð á folatollum og öðrum eigulegum hlutum. Lifandi tónlist, leynigestur og  „ýmislegt“  fleira.
Taktu frá kvöldið og tryggðu þér miða meðan færi  gefst!  Miðar eru seldir á Toytota á Selfossi, miðaverð er aðeins kr. 5000.

Allur afrakstur af kallakvöldinu rennur til Reiðhallar Sleipnis. 

Nefndin