Á Sunnlenskum sveitadögum síðastliðinn laugardag var Æskulýðsnefnd Sleipnis með teymingar undir börnum á athafnasvæði Jötunvéla.
Verkefnið var í samvinnu við Jötunvélar / Sunnlenska sveitadaga og tókst með afbrigðum vel.
Teymt var undir börnum frá kl. 12:30 – 17 og voru farnar yfir 700 ferðir á tímabilinu.
Æskulýðsnefnd Sleipnis þakkar öllum sem að verkefninu komu fyrir veitta aðstoð.