Mynd: Sigurbjörn Gestsson

Fjölskyldureiðtúr Sleipnis, Ljúfs og Háfeta var farin í dag og lögðu um 24 reiðmenn upp frá Hliðskjálf um kl. 14.  Áð var við Uppsali og bauð Æskulýðsnefnd þar  upp á hressingu. Við heimkomu að Hliðskjálf var síðan boðið upp á grillaðar pylsur, skúffukökur, gos, kaffi og kókó. Tókst þetta með mestu ágætum,  rétt sluppum í Hliðskjálf áður en öskuskýið lagðist yfir bæinn. Æskulýðsnefnd vill þakka öllum sem lögðu hönd á plóginn fyrir veitta aðstoð sem og þátttakendum fyrir samveruna.
Æskulýðsnefnd.