Breyting á skráningu

Íslandsmótið verður haldið 13-16 júlí nk. á Brávöllum á Selfossi.

Knapar athugið það er breyting á fyrirkomulagi skráningar:

Breyting var gerð á lögum um Íslandsmót á síðasta þingi LH á þá leið að hestamannafélagið sem heldur mótið tekur við skráningu keppenda en ekki aðildarfélag eins og fram kom í síðustu frétt um mótið.

Skráning mun fara fram í síma eða í Hliðskjáf félagsheimili Sleipnis dagana 5 – 7 júlí nk. milli kl. 18 og  21 alla dagana. Við biðjum keppendur að fylgjast vel með á www.sleipnir.is þar  sem allar frekari upplýsingar verða birtar.  Drög að dagskrá er á www.sleipnir.is.  Skráningargjöld kr. 5.000- greiðast við skráningu.

Margrét K. Erlingsdóttir fjölmiðlafulltrúi mótsins.