Á vef Sleipnis eru að týnast inn myndasöfn frá nokkrum sleipnisfélögum sem hafa ljáð okkur myndir úr sínum söfnum til að gera vefinn okkar skemmtilegri. Við vonumst til að þeir félagsmenn sem eiga myndir úr starfi félagsins eða aðrar myndir úr hestamennskunni sem þeir vilja deila með okkur hinum hafi samband við ritnefnd. Við munum bæta inn myndasöfnum eftir því sem þau berast og tími vinnst til, endilega kíkið á safnið sem er undir flipanum 'Saga Sleipnis' - 'Myndir félagsmanna'. eða smellið HÉR til að skoða.