Æskulýðsmál
Æskulýðsnefnd Sleipnis boðar til fræðslufundar þar sem Ágúst Hafsteinsson, yfirdómari á landsmóti og Sigurður Torfi Sigurðsson yfirfótaskoðunarmaður á landsmóti halda erindi.
Ágúst fjallar um hvernig dómarar meta sýningar hjá keppendum í barna- unglinga og ungmennaflokkum og hvaða atriði dómarar eru sérstaklega að leita eftir.
Sigurður Torfi fjallar um reglur varðandi járningar og fótabúnað á landsmóti.
Allir eru velkomnir á fundinn, en lögð er rík áhersla á að keppendur ásamt forráðamönnum / foreldrum yngri keppenda mæti.
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 26. júní kl 20:30 í Hlíðskjálf.
Hestamannafélagið Sleipnir heldur reiðnámsskeið í Sólvangi vikuna 11-15 ágúst. Kennt verður daglega. Nemendur mæti með eigin hross og geta fengið að geyma þau á meðan námskeiðið stendur yfir. Námskeiðið er bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Verð kr. 8.000 fyrir félagsmenn Sleipnis og 10.000 fyrir aðra nemendur. Kennari: Elsa Magnúsdóttir Æskulýðsnefndin Skráningar og upplýsingar hjá Ragnhildi Sigurðardóttur í síma 862-3423 og 566-8778